|
Helgadalshestar Í Dalsbúi í Helgadal rækta ég hross í smáum stíl, ræktunar stefnan er ljós og svo er bara haldið áfram með glampa í augum og eldmóð í hjarta. Ekki spillir fyrir að hafa trú á sjálfum sér til undaneldis og eigum við hjónin fjögur börn... |
|
14.05.2012 09:54Garðurinn sí vinsæliGarðurinn okkar er vinsæll staður þótt að ekki sé hann enn orðin sú skjólsæla gróður vin sem mig dreymir um. Trampolínið virðist vera mjög vinsælt hjá bæði mönnum og dýrum, enda niðurgrafið til að minka líkurnar á slæmum byltum. Bæði endur, gæsir og hundar hafa sést spóka sig á trampolíninu... sem og í sandkassanum :) Ég býst nú samt ekki við miklum loftfimleikum af þessum garðgestum, en maður veit þó aldrei - þetta sýnir kanski frekar að það sé komið að viðhaldi á girðingum, enda ófáar sem urðu fyrir hnjaski í snjóþyngslunum í vetur Þetta var nú frekar það sem garðurinn var hugsaður fyrir, en hitt er nú svo sem allt í lagi í hófi - enda allt í anda lífrænnar stefnu hér á bæ, þar sem fyrrnefndir gesti skilja oft eftir sig lífrænann áburð sem hjálpar til við að byggja upp heilbrigðann og góðann jarðveg sem er einmitt undirstaðan fyrir skjólgóðu gróðurvininni sem mig dreymir um. Með von um betra veður og hlýja daga Helga Skrifað af Helgu Skowronski 08.05.2012 09:29Sól úti....Vorið er komið inni í gróðurhúsinu amk en þar er ég búin að dunda mér tímunum saman ásamt Þorgrími. Annars vildi ég helst vera að allann sólarhringinn á þessum árstíma að dytta að gróðri og undirbúa sumarið. Ásgeiri þótti nóg komið fyrir þó nokkru þegar að ekki var einu sinni pláss til að hella upp á kaffi inni í elhúsi fyrir alls konar sáðbökkum og blómapottum út um allt. Þegar að betur fór að viðra flutti ég plönturnar mínar út í gróðurhús, en þar hafa sumar þeirra dafnað vel en aðrar ekki. T.d missti ég helminginn af bæði brokkolíinu og blómkálinu eina nóttina þegar ég gáði ekki að mér að fylgjast með veðurspánni og næturfrostið náði í táslurnar á þeim greyjunum. Ég tók þá á það ráð að sá restinni af fræjunum beint út í beð í gróðurhúsinu og voru þær plöntur farnar að spíra fyrir þó nokkru. Þessar plöntur eru miklu pattaralegri heldur en þær sem ég kom af stað innivið og vonast ég eftir að þetta takist þannig að ég fái uppskeru í haust eins og í fyrra. Löng hefur biðin verið eftir haughúsinu, en eftir mikið af vangaveltum og samningum við sérfræðinga og eftirlitsmenn og allra handa ráðamenn, voru loksins steyptir veggir í gímaldið mikla á föstudaginn var. 5 steypubíla þurfti í veggina og að mig minnir 3 voru settir í plötuna í þar síðustu viku. Fyrstu fundir vegna hússins voru haldnir þegar fyrir áramót og grunar mig að skriffinnskan sé orðin einum of öflugt fyrirbæri hér á landi, þegar að það er orðið margra mánaða streð og mörg hundruð þúsund króna útlát til að fá leyfi til að koma upp einum steypukassa til að geyma skít. Getur það virkilega verið raunin að þörf sé fyrir öllu þessu bákni ? Jæja að öðru skemmtilegra og ánægjulegra :) Gotið gengur ágætlega fyrir sig í ár, læðurnar eru rólegar og halda ágætlega utan um hvolpana sína. Þó hefur aðeins borið á því að læður sem eru of þungar séu að missa undan sér, en svona er þetta. Salvör mín, þessi öðlings hryssa gladdi mig mikið þegar hún birtist með þessa líka gull fallegu blesóttu sokkóttu hryssu undan heiðursverðlauna hestinum Hróðri frá Refsstöðum. Nú er bara að finna nafn á gripinn, nokkur nöfn eru komin á listann Snerpa Snilld Staka Sæmd Stikla Já hún er ósköp sæt og blíð sú stutta, en hún getur líka tekið á því - Þær mæðgurnar hlupu hér um í gærkvöldi, en hann Hjálmar litli var eithvað að pirra þær og Stubban litla fylgdi mömmu sinni á yfirferðartölti án þess að hlaupa upp á stökk, en á eftir þeim stökk Hjálmar alveg að drepast úr forvitni. Já sólin skín á okkur hér í Dalsbúinu, og við unum okkur við leik og störf, þakklát fyrir hvern dag. Bestu kveðjur :) Skrifað af Helgu Skowronski 31.03.2012 21:40Þorbjörg Gígja 5 ára í fanginu á nöfnu :) Pétur Þór 10 ára Mars er afmæismánuður í okkar fjölskyldu, en Gígja og Pétur eiga afmæli þann 26 og 30. Ég hélt nú að þau fengju sama afmælisdaginn á sínum tíma, en ég var komin með verki á 5 mín fresti á afmælinu hans Péturs fyrir 5 árum síðan :) Annars gengur lífið sinn vanagang hér hjá okkur, pörunin er yfirstaðin, og nú er verið að undirbúa búið fyrir gotið sem hefst stuttu eftir páska. Reyndar er framkvæmda gleðin hér á bæ ekkert að réna, en það er byrjað að grafa og hamast hér enn eina ferðina. Jón Tap að störfum Í þetta sinn er það 25 m löng haugþró sem er á dagskrá, og verð ég að viðurkenna að ég hefði nú frekar valið mér eithvað krúttlegra til að prýða hlaðið hjá mér....En lítum á björtu hliðarnar, allt fyrir heilbrigðiseftirlitið, er það ekki þannig :) Annars er framkvæmt á fleirri stöðum en hjá okkur, þegar ég kom heim í dag var einhver óprúttinn aðili búin að taka niður rafmagnsgirðinguna mína - með staurum og öllu þannig að eftir stóð ekkert nema staurahrúga, upprúllaður rafmagnsþráður og rönd í sverðinum sem eina merkið um að þarna hafi nokkurtíman verið landamerki. :S Ég varð alveg gapandi hissa, hvað skal gera? - hringir maður kanski í lögregluna og tilkynnir stolna girðingu í svona tilvikum? Að öðru og skemmtilegara - nefnilega stóðhestum :) Ég er búin að grufla og grúska yfir stóðhestaflóru landsins, og eru þeir "heitustu" ansi ríflega verðlagðir og þar af leiðandi ekki inni á fjárhagsáætlun í ár. Gneisti sem við notuðum í fyrra er kominn í tamningu og er umsögnin eftirfarandi - " Gísli á Þúfum kann bara vel við hann og talar um góðann vilja og gott geðslag. Það verður góður fótaburður og rými við erum búin að sjá hann undir í febrúar og sýndi hann flotta takta." Hins vegar er ég einnig búin að heyra í Guðmundi á Sauðárkróki varðandi Dagfara og líst mér það vel á lýsinguna og myndirnar af klárnum að ég er búin að panta 2 pláss undir hann. Þannig að Salvör fer undir Dagfara og Gríma fer annað hvort undir Dagfara eða Gneista, það fer eftir því hvort Gneisti verður í boði á réttum tíma og á réttum stað, eða þannig :) Ætlaði hér að setja inn fleirri myndir en kerfið var með uppsteyt :Þ Bið því bara að heilsa í bili. Skrifað af Helgu Skowronski
|
clockhere Flettingar í dag: 18 Gestir í dag: 11 Flettingar í gær: 24 Gestir í gær: 13 Samtals flettingar: 93873 Samtals gestir: 35079 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 13:32:34 Eldra efni
Nafn: Helga SkowronskiFarsími: 897-7233Tölvupóstfang: sodlasmidur@gmail.comAfmælisdagur: 12 ágústHeimilisfang: Dalsbú, HelgadalHeimasími: 566-7380Tenglar |