|
Helgadalshestar Í Dalsbúi í Helgadal rækta ég hross í smáum stíl, ræktunar stefnan er ljós og svo er bara haldið áfram með glampa í augum og eldmóð í hjarta. Ekki spillir fyrir að hafa trú á sjálfum sér til undaneldis og eigum við hjónin fjögur börn... |
|
Færslur: 2012 Febrúar29.02.2012 11:55EnglandsferðÞá er ég komin heim eftir vel heppnaða ferð til Walsall í Englandi, ótrúlega hressandi og skemmtilegt að vinna með þeim félögum Steve og Rick á Sturgess saddlery, enda miklir snillingar á ferð í öllu er viðkemur hnökkum og hnakkahönnun. Tek bara mynd af mér sjálf :) Ég gisti á B&B rétt hjá verkstæðinu og rölti því í vinnuna á hverjum morgni, en ég gekk fram hjá þessari stórkostlegu kirkju á hverjum degi. Meistari Steve og Rick á bakvið Ég hafði prófað nýju útgáfuna af Ísland Sleipni hér heima en það er hægt að prufa þá og kaupa hjá Hestar og Menn. Ég byrjaði á því að ræða við Steve um hvernig ég myndi vilja hafa minn hnakk, og eftir hverju ég væri að leita sem var ss. ég vil sitja rétt og geta beitt mér í hnakknum án þess að vera alltaf að hreyfa mig aftur á þann stað sem ég vil vera á. Svo útskýrði ég fyrir honum að það væri krónískt vandamál með mín hross að hnakkurinn rynni oftast fram. Þetta var ekkert vandamál, hann dró fram sniðin af Sleipni og við gerðum smáveigilegar breytingar á hnépúðum og staðsetningu á móttökum og svo leiðbeindi hann mér í gegnum ferlið og var hnakkurinn tilbúinn rétt um hádegi á fimmtudegi eða á tæpum 4 vinnudögum sem mér þótti stórkostlegt. Þeir félagar eru hinsvegar aðeins fljótari með sína vinnu því þeir geta framleitt einn hnakk á dag ef að mikið liggur við, og á meðan ég var hjá þeim þá m.a sérsmíðuðu þeir RISA stórann hindrunarstökkshnakk og hönnuðu hann allann frá grunni eftir málum af knapanum og hestinum. Stolt með fyrsta hnakkinn sem ég hef smíðað síðan ég kláraði sveinsprófið (fyrir 14 árum) Ég lærði mikið á þessum dögum hjá Sturgess en mikilvægast var að rifja upp öll handtökin og yfirstíga þá meinloku sem var í mér að ég gæti þetta ekki lengur, ég er rosalega ánægð með hnakkinn - hann situr vel á hestinum og ég get beitt mér vel í honum, þannig að strákar, ef þið lesið þetta með hjálp Google translate - TAKK :) Ísland Sleipnir Hafið það gott og verið stillt kv Helga Söðli :) Skrifað af Helgu Skowronski 03.02.2012 10:16Og tíminn líðurEins og annarstaðar á landinu hefur hér verið allt á kafi í snjó og mikið ósköp hef ég verið fegin að vera fjórhjóladrifin, þar sem skutlið fram og aftur í skóla og tómstundir hefur verið talsvert. Við lentum þó tvisvar í að festa okkur og verð ég lengi að gleyma göngunni upp brekkuna, með ískaldann haglstorminn í flasið, dröslandi Gígju háorgandi á eftir mér með Þorgrím í fanginu. En svo fór að hlána og eftir nokkra daga á skautasvelli þá vogaði ég mér út í garð - og viti menn, hvað sá ég úti í einu beðinu annað en brakandi ferskt og flott grænmeti ! Því var bjargað inn í snatri og matreitt með fiskinum seinna um kvöldið. Veturinn hefur annars gengið sinn vana gang, við erum búin að verka öll skinn og eru þau komin út til Danmerkur þar sem þau verða seld á uppboði. Nú liggur fyrir heimavinna að slá öll ræktunardýr búsins inn í tölvuna þannig að hægt sé að prenta út kort fyrir pörun sem hefst í mars. Heimilisdýrin eru að ganga menntaveginn eða þannig, en Kolur litli er að læra mannasiði á hvolpanámskeiði hjá Gallerí Voff hér á næsta bæ, og við Perla erum á námskeiði niðri í Herði á sunnudögum og komum við báðar yfirleitt vel sveittar út úr þeim tíma, enda söfnun erfið bæði fyrir kerlingar og trippi :) Hér er Kolur að leysa heimaverkefnið sitt, að ná fóðrinu úr flöskunni :) Ég er sjálf að fara í smá endurmenntun á næstunni, en ég á bókaðann miða til Englands, nánar tiltekið Walsall, en þar ætla ég að hressa upp á söðlasmíði kunnáttuna hjá Söðlasmíðimeistara nokkrum Steve Sturgess að nafni. Heimasíða Sturgess saddlery er http://www.sturgesssaddlery.com/ Þessir ágætu menn framleiða meðal annars Ísland Sleipnir hnakkinn sem er seldur í Hestar og Menn. Mig er farið að hlakka talsvert til og verður skrítið að "eiga mig sjálf" í heila viku :) Þorgrímur einbeittur við uppvaskið OJ ! Hafið það gott kveðja Helga í Helgadal Skrifað af Helgu Skowronski
|
clockhere Flettingar í dag: 18 Gestir í dag: 11 Flettingar í gær: 24 Gestir í gær: 13 Samtals flettingar: 93873 Samtals gestir: 35079 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 13:32:34 Eldra efni
Nafn: Helga SkowronskiFarsími: 897-7233Tölvupóstfang: sodlasmidur@gmail.comAfmælisdagur: 12 ágústHeimilisfang: Dalsbú, HelgadalHeimasími: 566-7380Tenglar |