|
Helgadalshestar Í Dalsbúi í Helgadal rækta ég hross í smáum stíl, ræktunar stefnan er ljós og svo er bara haldið áfram með glampa í augum og eldmóð í hjarta. Ekki spillir fyrir að hafa trú á sjálfum sér til undaneldis og eigum við hjónin fjögur börn... |
|
03.02.2012 10:16Og tíminn líðurEins og annarstaðar á landinu hefur hér verið allt á kafi í snjó og mikið ósköp hef ég verið fegin að vera fjórhjóladrifin, þar sem skutlið fram og aftur í skóla og tómstundir hefur verið talsvert. Við lentum þó tvisvar í að festa okkur og verð ég lengi að gleyma göngunni upp brekkuna, með ískaldann haglstorminn í flasið, dröslandi Gígju háorgandi á eftir mér með Þorgrím í fanginu. En svo fór að hlána og eftir nokkra daga á skautasvelli þá vogaði ég mér út í garð - og viti menn, hvað sá ég úti í einu beðinu annað en brakandi ferskt og flott grænmeti ! Því var bjargað inn í snatri og matreitt með fiskinum seinna um kvöldið. Veturinn hefur annars gengið sinn vana gang, við erum búin að verka öll skinn og eru þau komin út til Danmerkur þar sem þau verða seld á uppboði. Nú liggur fyrir heimavinna að slá öll ræktunardýr búsins inn í tölvuna þannig að hægt sé að prenta út kort fyrir pörun sem hefst í mars. Heimilisdýrin eru að ganga menntaveginn eða þannig, en Kolur litli er að læra mannasiði á hvolpanámskeiði hjá Gallerí Voff hér á næsta bæ, og við Perla erum á námskeiði niðri í Herði á sunnudögum og komum við báðar yfirleitt vel sveittar út úr þeim tíma, enda söfnun erfið bæði fyrir kerlingar og trippi :) Hér er Kolur að leysa heimaverkefnið sitt, að ná fóðrinu úr flöskunni :) Ég er sjálf að fara í smá endurmenntun á næstunni, en ég á bókaðann miða til Englands, nánar tiltekið Walsall, en þar ætla ég að hressa upp á söðlasmíði kunnáttuna hjá Söðlasmíðimeistara nokkrum Steve Sturgess að nafni. Heimasíða Sturgess saddlery er http://www.sturgesssaddlery.com/ Þessir ágætu menn framleiða meðal annars Ísland Sleipnir hnakkinn sem er seldur í Hestar og Menn. Mig er farið að hlakka talsvert til og verður skrítið að "eiga mig sjálf" í heila viku :) Þorgrímur einbeittur við uppvaskið OJ ! Hafið það gott kveðja Helga í Helgadal Skrifað af Helgu Skowronski 02.01.2012 11:26Tók nokkrar myndir í snjónum um daginn, hér er ein af húsinu okkar síbreytilega - það bætast við bíslög og skjólveggir smám saman, enda uppgötvuðum við strax fyrsta veturinn að jafnvel öflugustu karlar halda ekki hurðunum þegar norðanáttin blæs sem verst. Jól og áramót voru haldin hátíðleg eins og vera ber. Dal búar tóku á móti nýja árinu með pompi og pragt, og nægði mér fyllilega að fylgjast með dýrðinni út um gluggann. Frétti ég af folaldshryssum hér rétt hjá sem brutust út úr hesthúsinu 5 mínútur fyrir miðnætti og var talsverð fyrirhöfn að ná þeim aftur inn blessuðum greyjunum enda skildu þær ekkert í öllum látunum í kringum þær. Hvaða hljóð var þetta ?? Hjá okkur var samt allt með ró og spekt sem betur fer, enda ekkert skotið upp hér á innstu bæjunum og öll hross á kafi í rúllu upp fyrir eyru. Kaili, Rasmus, Henri og Gígja Svo eina mynd hér í lokin af krökkunum í Dalsbúinu inni í snjóhúsinu sem Andrus gróf út með Agromatic vélinni, snilldar græja þessi vél hún mokar út, lyftir rúllum, það fylgir henni staurabor og bakkó og það er hægt að kaupa á hana alls konar aukahluti eins og háþrýstidælu, snjóblásara og slátturvél - sem sagt drauma leikfang bóndans :) Bestu kveðjur Helga í Helgadal Skrifað af Helgu Skowronski 18.12.2011 14:23Snjókorn fallaDagfari frá Sauðárkróki Snjórinn fellur í stórum stíl hér fyrir utan , ekki vika til jóla, en hvað gerir frúin í Dalsbúi annað en að spá í stóðhesta og skipuleggja grænmetisbeð næsta vors :)) HAhahah, ekki með öllu mjalla kanski, en þvílíkt gaman. Þessi myndar foli er enginn annar en Hróðurs og Hvítasunnusonurinn Dagfari frá Sauðárkróki, og ætla ég að gera mér ferð alla leið inn í Eyjafjörðinn til að fá að leiða undir hann næta sumar. Ég er talsvert spennt að fara með jafnvel tvær merar, en við sjáum bara til, því vissulega er ennþá langt til vors. Annars voru þær heiðurs hryssur Sylgja og Perla settar á hús í dag - Þær voru aðeins farnar að hnjúska þannig að ég þorði ekki annað þótt að ég hafi í raun engann tíma aflögu fyrr en eftir áramót. Sylgja og Perla Læt þetta gott heita í bili knús Helga í Helgadal Skrifað af Helgu Skowronski |
Vafraðu umclockhere Flettingar í dag: 33 Gestir í dag: 15 Flettingar í gær: 71 Gestir í gær: 30 Samtals flettingar: 89136 Samtals gestir: 33212 Tölur uppfærðar: 9.2.2012 22:27:04 Eldra efni
Nafn: Helga SkowronskiFarsími: 897-7233Tölvupóstfang: sodlasmidur@gmail.comAfmælisdagur: 12 ágústHeimilisfang: Dalsbú, HelgadalHeimasími: 566-7380Tenglar |