Helgadalshestar

Í Dalsbúi í Helgadal rækta ég hross í smáum stíl, ræktunar stefnan er ljós og svo er bara haldið áfram með glampa í augum og eldmóð í hjarta. Ekki spillir fyrir að hafa trú á sjálfum sér til undaneldis og eigum við hjónin fjögur börn...

02.01.2012 11:26


Tók nokkrar myndir í snjónum um daginn, hér er ein af húsinu okkar síbreytilega - það bætast við bíslög og skjólveggir smám saman, enda uppgötvuðum við strax fyrsta veturinn að jafnvel öflugustu karlar halda ekki hurðunum þegar norðanáttin blæs sem verst.
Jól og áramót voru haldin hátíðleg eins og vera ber.
Dal búar tóku á móti nýja árinu með pompi og pragt, og nægði mér fyllilega að fylgjast með dýrðinni út um gluggann.
Frétti ég af folaldshryssum hér rétt hjá sem brutust út úr hesthúsinu 5 mínútur fyrir miðnætti og var talsverð fyrirhöfn að ná þeim aftur inn blessuðum greyjunum enda skildu þær ekkert í öllum látunum í kringum þær.


Hvaða hljóð var þetta ??

Hjá okkur var samt allt með ró og spekt sem betur fer, enda ekkert skotið upp hér á innstu bæjunum og öll hross á kafi í rúllu upp fyrir eyru.


Kaili, Rasmus, Henri og Gígja

Svo eina mynd hér í lokin af krökkunum í Dalsbúinu inni í snjóhúsinu sem Andrus gróf út með Agromatic vélinni, snilldar græja þessi vél hún mokar út, lyftir rúllum, það fylgir henni staurabor og bakkó og það er hægt að kaupa á hana alls konar aukahluti eins og háþrýstidælu, snjóblásara og slátturvél - sem sagt drauma leikfang bóndans :)

Bestu kveðjur Helga í Helgadal

24.12.2011 11:06

 

Frá okkur í dalsbúinu



18.12.2011 14:23

Snjókorn falla

Dagfari frá Sauðárkróki

Snjórinn fellur í stórum stíl hér fyrir utan , ekki vika til jóla, en hvað gerir frúin í Dalsbúi annað en að spá í stóðhesta og skipuleggja grænmetisbeð næsta vors :))
HAhahah, ekki með öllu mjalla kanski, en þvílíkt gaman.
Þessi myndar foli er enginn annar en Hróðurs og Hvítasunnusonurinn Dagfari frá Sauðárkróki, og ætla ég að gera mér ferð alla leið inn í Eyjafjörðinn til að fá að leiða undir hann næta sumar.
Ég er talsvert spennt að fara með jafnvel tvær merar, en við sjáum bara til, því vissulega er ennþá langt til vors.

Annars voru þær heiðurs hryssur Sylgja og Perla settar á hús í dag - Þær voru aðeins farnar að hnjúska þannig að ég þorði ekki annað þótt að ég hafi í raun engann tíma aflögu fyrr en eftir áramót.

Sylgja og Perla

Læt þetta gott heita í bili

knús Helga í Helgadal

    Vafraðu um

    clockhere
    Flettingar í dag: 44
    Gestir í dag: 13
    Flettingar í gær: 35
    Gestir í gær: 20
    Samtals flettingar: 88377
    Samtals gestir: 32920
    Tölur uppfærðar: 28.1.2012 16:44:06

    Nafn:

    Helga Skowronski

    Farsími:

    897-7233

    Afmælisdagur:

    12 ágúst

    Heimilisfang:

    Dalsbú, Helgadal

    Heimasími:

    566-7380

    Tenglar